Strigamyndir

Við prentum myndir á striga og setjum á blindramma. Hjá okkur er ending og gæði aðalatriði og þess vegna notum við striga frá viðurkenndum aðila sem er stærsti framleiðandi striga í Bandaríkjunum.
Framleiðandi striga er Breathing Color USA
Hér má nálgast skjal sem staðfestir endingu á striganum
BC_Quality_Certificate_ChromataWhiteCanvas.pdf
Við setjum að sjálfsögðu vörn (coating) á allar strigamyndir sem tryggir enn frekari endingu myndarinnar, auk þess sem það varnar myndinni fyrir fingraförum og öðrum óhreinindum, auk þess sem hægt er að strjúka af myndinni með rökum klút. Það er mat okkar að verja myndina með Glamour II er algjört skilyrði til að tryggja endingu og gæði myndarinnar.
Notaður er HP Z3100 prentari sem er 12 lita pigment prentari.

HP Z3100 12 lita pigment prentari með innbyggðan icc profile maker
Hér má nálgast prófíl fyrir strigann sem er notaður.
profill1.zip
Verðskrá fyrir nokkrar algengar stærðir ( aðrar stærðir fáanlegar)
| 20x30 | - | 5.750.kr |
| 30x45 | - | 6.675.kr |
| 40x60 | - | 9.150.kr |
| 50x75 | - | 12.875.kr |
| 80x120 | - | 26.500.kr |
| 100x150 | - | 42.500.kr |
| 30x30 | - | 5.750.kr |
| 50x50 | - | 9.250.kr |
| 80x80 | - | 20.900.kr |
| 100x100 | - | 32.500.kr |
Blindramminn hleypur á 5cm og minnsti rammi er 20cm, síðan hlaupa rammar á 5cm lengdum þannig að mynd getur verið 20,25,30,35cm og svo allt uppí 100cm á breiddina og lengd bara eins og þarf til.
Við sjáum um að gera aukakant á myndir til að myndin blæði yfir allan ramman án aukagjalds.








