Uppsetning
Þegar forritið er sótt opnast gluggi sem heitir "File download". Þar skaltu velja "Run" hnappinn til að hefja uppsetningu á hugbúnaðinum fyrir Netframköllun.
Þá er skránni hlaðið niður og eftir það byrjar uppsetningin.

Algengt er að það komi upp aðvörunargluggi sem spyr aftur hvort að þú viljir keyra skránna. Þessi gluggi er partur af auknu öryggi í Windows stýrikerfinu. Smellið á Run til að halda áfram.

Næst kemur upp innsetningarkerfi sem mun setja upp Netframköllunarhugbúnaðinn á tölvuna þína. Veljið "Next" hnappinn til að byrja og svo "Install" hnappinn á næsta glugga. Þá mun fara í gang innsetningarferli sem er algjörlega sjálfvirkt.



Þegar innsetningu er lokið er smellt á "Finish" hnappinn.

Á skjáborðinu er núna táknmynd fyrir Netframköllun. Tvísmellið á myndina til að ræsa hugbúnaðinn.





