Ganga frá pöntun

Það fyrsta sem þú gerir eftir að hafa skráð þig inn í Netframköllunina, er að ná í þær myndir sem þú ætlar að senda í framköllun.  Fyrst smellum við á opna hnappinn sem er með mynd af möppu.

 

 

Þá kemur upp gluggi frá stýrikerfinu sem er kunnuglegur og bíður upp á að þú veljir eina eða fleiri skrár til að opna.  Finnið möppuna með myndunum og veljið svo allar þær myndir sem þið viljið panta.  Hægt er að nota músina til að draga yfir margar myndir í einu, eða smella á eina í eina á meðan haldið er niðri "Ctrl" hnappinum á lyklaborðinu.

Eftir að myndirnar hafa opnast í kerfinu er þær birtar neðst í filmuröndinni.  Með því að smella á mynd opnast hún í vinnslusvæðinu jafnstór og skjáupplausnin þín leyfir.  Þar getur þú þysjað (zoom) myndina inn og út, hliðrað henni og snúið til að skoða hana frekar.  Í framtíðinni mun verða hægt að klippa út úr myndinni í þessum glugga.  Einnig er myndin merkt sem valin með blárri umgjörð í stað þessarar hvítu.

 

 

Litaði punkturinn sem birtist fyrir neðan myndina segir til um gæði myndarinnar fyrir valda myndastærð.  Grænn punktur merkir að myndin hentar vel til framköllunar í valdri stærð, gulur punktur að myndin henti ágætlega til framköllunar í valdri stærð og rauður punktur að myndin sé í of litlum gæðum til að framkalla í valdri stærð.  Að sjálfsögðu er hverjum viðskiptavini samt frjálst að ákveða hvort hann sendir myndirnar í framköllun óháð þessum ábendingum.

Hnapparnir sem eru fyrir neðan vinnslusvæðið eru eftirfarandi (frá vinstri til hægri):
Opna myndir, þysja inn, setja í upphaflega stærð, þysja út, snúa til vinstri, snúa til hægri, klippa út úr (ekki virkt ennþá) og fjarlægja mynd.  Athugið ef "Ctrl" takkanum á lyklaborðinu er haldið inni þegar smelt er á "Fjarlægja mynd" (ruslatunnan), fjarlægir hugbúnaðurinn allar myndir sem hafa verið opnaðar.

 

 

Þegar mynd er valin er hægt að stilla Myndastærð sem óskað er eftir og fjölda eintaka af myndinni.  Þessi valmöguleiki er staðsettur efst í hægra horninu og virkar aðeins á þá mynd sem er valin í hvert skipti.  Veljið hverja mynd fyrir sig og breytir myndastærð og fjölda eins og við á.

 

 

Neðst í valröndinni (hægramegin) eru samtölur fyrir verð á myndum og kostnaður vegna greiðslumáta og afhendingar.   Einnig er þar "Vinnslugjald" sem er upphæð sem þarf til að ná upp í lágmarksgjald við pöntun.  Dæmi hér að neðan sýnir að lágmarkspöntun þarf að vera 400 kr..  Þar sem aðeins er pöntuð er ein mynd sem kostar 60 krónur, er vinnslugjaldið þær 340 kr. sem vantar upp á til að ná 175 kr. lágmarksverði.

 

 

Neðst til hægri á skjánum er að finna þrjá hnappa.  Þann fyrsta til að vista pöntunina og geyma til að senda inn síðar.  Í miðjunni er hnappur til að fá yfirlit yfir myndir, stærðir, fjölda og verð í pöntuninni.  Að lokum er "Senda" hnappur til að halda áfram og senda pöntunina í framköllun.  Senda hnappurinn setur í gang aðstoðar álf (Wizard) sem bíður upp á að skrifa athugasemdir með pöntuninni, óskar eftir kreditkortaupplýsingum ef við á og birtir samantekt á pöntuninni til staðfestingar áður en sendingin fer af stað.

 

 

Á fyrstu síðunni í sendingar-álfinum er hægt að skrifa inn athugasemdir sem þið viljið að komist til skila til framköllunarinnar.  Smellið á áfram eftir að textinn hefur verið skrifaður inn.

Þá birtist gluggi þar sem hægt er að velja um greiðslumáta og afhendingarmáta.

 

 

Ef valið er að greiða með kreditkorti, þá opnast reitirnir hægramegin í glugganum og þarf að fylla þá út til að halda áfram.  Ef einhver aukakostnaður fellur á pöntunina vegna greiðslu eða afhendingar, þá birtist upphæðin fyrir neðan velgluggan. 

Valkosturinn um að hagræða myndum í sendingu, merkir að í þeim tilfellum þar sem það á við er myndin minnkuð fyrir sendingu í þá stærð sem á að framkalla hana í.  Myndavélar eru orðnar svo góðar í dag að þær taka myndir í mjög góðum gæðum sem eru nægjanleg fyrir stækkanir.  Til þess að stytta tímann í sendingu þá er hægt að hagræða stærðinni.  Notandinn hefur samt alltaf tækifæri á að taka þessa hagræðingu af og þá sendir hugbúnaðurinn myndina í fullri upplausn.  Smellið á áfram til að klára pöntunina og senda myndirnar inn.

 

 

Þá eru myndirnar sendar inn einni af annarri og að lokum kemur upp staðfestingargluggi.

 

 

Smellið á loka glugga til að búa til nýja pöntun eða loka forritinu.